VERSLUN Í FAXAFENI 10

Small Foot

Þroskasett fyrir 10-12 mánaða

12,990 kr

Vandað þroskaleikfangasett með sex aldursmiðuðum leikföngum sem eru sérstaklega valin með hliðsjón af þroska barna á aldrinum 10–12 mánaða. Á þessu aldursbili byrja börn að raða, flokka, stafla og átta sig á einföldum tengslum milli hluta.

Settið inniheldur staflaturn með þremur hringjum sem hægt er að stafla bæði lárétt og lóðrétt, þroskakassa með trékúlu, skífur með myndum af kunnuglegum hlutum, púsluspil, þrjár tréskálar með þremur sílikonkúlum með mismunandi áferð og hristuegg úr tré.

Leikföngin efla fínhreyfingar, samhæfingu augna og handa, einbeitingu og rökhugsun. Börnin læra að þekkja og bera saman liti, form, stærðir og áferðir, kynnast orsök og afleiðingu og uppgötva að hlutir halda áfram að vera til þótt þeir hverfi úr augsýn.

Öll tréleikföngin eru úr FSC® 100% vottuðum viði. Með settinu fylgir leiðbeiningabæklingur með hugmyndum að leikjum og fróðleik um þroska barna á þessu aldursbili.

CE merkt

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum