Small Foot

Þroskasett fyrir 7-9 mánaða

12,990 kr

Vandað þroskaleikfangasett með sex aldursmiðuðum leikföngum sem eru sérstaklega valin með hliðsjón af þroska barna á aldrinum 7–9 mánaða. Á þessu aldursbili verða börn forvitnari, skoða hluti markvisst, endurtaka hreyfingar og byrja að átta sig á áhrifum eigin athafna.

Settið inniheldur snúningstrommu, kúlukassa með trékúlum, spegilpúsl með grip pinna, hljóðkassa, mjúkan efniskassa með fimm klútum og skynjunarrör.

Leikföngin efla fínhreyfingar, grip, samhæfingu augna og handa, einbeitingu og skynjun. Börnin kynnast orsök og afleiðingu, bera saman hljóð, hreyfingar og mismunandi efnivið og læra að hlutir halda áfram að vera til þótt þeir hverfi úr augsýn. Fjölbreyttir leikmöguleikar hvetja til sjálfstæðrar könnunar og endurtekningar.

Öll tréleikföngin eru úr FSC® 100% vottuðum viði. Með settinu fylgir leiðbeiningabæklingur með hugmyndum að leikjum og fróðleik um þroska barna á þessu aldursbili.

CE merkt

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum