




Small Foot
Montessori skúffuleikfang
3,990 kr
Montessori þroskakassi úr FSC® 100% vottuðum viði með kúlu, tréskífum og útdraganlegri skúffu. Börnin setja kúluna og skífurnar í viðeigandi op, fylgjast með þeim hverfa inn í kassann og finna þær aftur í skúffunni. Þannig læra þau að hlutir halda áfram að vera til þótt þeir hverfi úr augsýn. Leikurinn eflir fínhreyfingar, samhæfingu augna og handa, einbeitingu, þolinmæði og rökhugsun. Skúffan nýtist einnig til geymslu á lausum hlutum. Vandað og endingargott þroskaleikfang með einfaldri og hagnýtri hönnun í anda Montessori sem hvetur til sjálfstæðs leiks og náms.
11 x 11 x 9 cm
12 mánaða+
FSC vottaður viður
CE merkt
