Gullkorn Design
Svalen ungbarnabuxur - Snow White
3.490 kr
Buxur úr ótrúlega mjúku efni með fínlegri rifflaðri áferð. Frábær grunnflík fyrir minnstu krílin. Gott snið og teygjanlegt efni þar sem þægindi barnsins eru í fyrirrúmi.
Til að hægt sé að nota buxurnar yfir lengri tíma eru þær með háum streng sem hægt er að bretta yfir í byrjun og hafa uppi síðar. Einnig er stroffið neðan á skálmunum hátt, og því auðveldlega hægt að bretta upp á það fyrst um sinn.
Efni: 48% bómull, 48% viskós, 4% elastane. (Oeko-Tex vottun)