LOKAÐ 9.-21. OKTÓBER - SENDUM ENGAR PANTANIR Á MEÐAN

Gullkorn Design

Pollagalli - Denim Blue

11.990 kr

Pollagalli úr endingargóðu efni með límdum saumum og 20.000 mm vatnsheldni sem er eitt það mesta á markaðnum í dag. Gallinn er alveg vatnsheldur og því frábær í útiveruna í vetur.

Hægt að taka hettuna af. Jakkinn er með vösum og endurskini. Buxurnar ná hátt upp og eru með stillanlegum axlaböndum, gúmmíólum undir sóla og endurskini. Rennilás í mitti svo auðvelt er að klæða sig í og ​​úr fyrir minnstu börnin. Gallinn er frekar mjór í sniðinu. 

Lífið er til að leika sér og útifatnaðurinn frá Gullkorn hvetur til hreyfingar, sköpunar og leiks!

Tæknilegir eiginleikar:

66% pólýester, 33% pólýúretan
20.000 mm vatnsheldni
Límdir saumar
Burstað efni að innan

Gallinn er meðhöndlaður með flúorlausri gegndreypingu og því gæti vatnshelda húðin minnkað eftir marga þvotta. Hægt er að gegndreypa vöruna aftur til að lengja líftímann.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum