FRÍ SENDING Á KAUPUM YFIR 8.000 KR

Wooly Organic

Ungbarna ullarleggings - Ecru

4.990 kr

Ullarleggings úr bestu mögulegu merino ullinni. Teygja með tölu inni í buxnastreng þannig að hægt er að þrengja mittið eftir þörfum. 

Flíkin er dásamlega mjúk og því afar hentug fyrir viðkvæma húð barnsins. Frábær flík á köldum vetrardögum, sem og innan undir gallann í vagninn eða bílstólinn. 

Merino ull er ein af verðmætustu náttúrutrefjunum með einstaka eiginleika. Merino ull er vel þekkt fyrir mýkt og fínleika, en hún hefur svo miklu meira að bjóða - hlýju, hitastýringu, rakadrægni og öndun. Wooly Organic býður upp á merínóullarlínu sem er framleidd með einfaldleika, endingu og þægindi í huga.

Efnið er 100% merínóull (Oeko Tex 100 vottuð, í 1. flokki fyrir börn).

Framleitt í eigin verksmiðju Wooly í Evrópu við mannúðlegar aðstæður.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum