Wooly Organic
Ullar heilgalli - Ecru
7.990 kr
Heilgalli úr bestu mögulegu merino ullinni. Tvær minnstu stærðirnar eru smelltar frá hálsi og niður með innanverðum fótleggjum, en stærri stærðirnar eru með smellum í hálsmáli og smellum á innanverðum fótleggjum. Hægt að bretta yfir fingurnar á minni stærðunum í stað vettlinga.
Flíkin er dásamlega mjúk og því afar hentug fyrir viðkvæma húð barnsins. Frábær flík á köldum vetrardögum, sem og innan undir útiföt í vagninn eða bílstólinn. Góð fjárfesting enda er um að ræða vandaða flík með mikla notkunarmöguleika sem endist vel.
Merino ull er ein af verðmætustu náttúrutrefjunum með einstaka eiginleika. Merino ull er vel þekkt fyrir mýkt og fínleika, en hún hefur svo miklu meira að bjóða - hlýju, hitastýringu, rakadrægni og öndun. Wooly Organic býður upp á merínóullarlínu sem er framleidd með einfaldleika, endingu og þægindi í huga.
Efnið er 100% merínóull (Oeko Tex 100 vottuð, í 1. flokki fyrir börn).
Framleitt í eigin verksmiðju Wooly í Evrópu við mannúðlegar aðstæður.