Mikk-line
Thermo+ sett - Burlwood
10.990 kr
Vandað thermo sett sem samanstendur af jakka og buxum. Efnið er vindhelt, vatnsfráhrindandi með 4.000 mm vatnsheldni og 3000 g öndun. Efnið er endingargott, með styrkingu á hnjám og setusvæði. Thermo efnið hefur þann eiginleika að halda líkamshitanum jafnari. Settið er með Bionic-Finish ECO húð sem veitir umhverfisvæna vatnsþéttingu. Endingargóður rennilás. Auðvelt að strjúka af jakkanum.
Gott stroff á ökklum og úlnliðum. Hlíf yfir rennilásnum efst sem kemur í veg fyrir að hann rekist í höku barnsins. Endurskinsmerki eru á flíkunum.
Notkun: Thermo fatnaður hentar mjög vel fyrir vor, sumar og haust veður sem skjól gegn veðri og vindum. Hægt er að nota settið undir pollagallann í köldu rigningarveðri. Einnig er hægt að nota jakkann einan og sér sem léttan sumarjakka.
Efni: 100% pólýester
Við mælum með að taka venjulega stærð barnsins í þessu setti.